Össur er alþjóðlegt fyrirtæki sem hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur.
Hjá fyrirtækinu starfa um 1600 starfsmenn á 14 starfsstöðvum í fjórum heimsálfum. Össur er annar stærsti stoðtækjaframleiðandi í heiminum í dag.
Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru á Íslandi þar sem starfa um 270 manns við þróun, framleiðslu, þjónustu og stjórnun.
Fyrirtækið er skráð í kauphöll OMX á Íslandi (OMX) undir merkinu OSSR og í Danmörku (NASDAQ: OMX).
Frá upphafi hefur Össur lagt áherslu á að framleiðsluvörur fyrirtækising stuðli að lífi án takmarkana, hvort sem um er að ræða stoðtæki eða stuðningsvörur.
Besti mælikvarðinn á starfsemi fyritækins er endurgjöf þeirra sem nota vörurnar okkar - sá vitnisburður er það sem gefur vinnu okkar gildi.